Lífið og tilveran í Blogglandi
Klukkan
24.02.2008 12:11:17 / hyggeligt

Sunnudagur

Já í dag er sunnudagur og ættum við að vera á leiðinni til Óðinsvéa, sem eru víst á Fjóni en ekki á Jótlandi.  Landafræði hefur aldrei verð mín sterka hlið hehe.  En nei við fórum ekki neitt því Andrea vaknaði með bullandi hita í gærmorgun og var með hita aftur í gærkveldi.  Hún er hitalaus núna og ég krossa fingur á báðum höndum og vona að það haldist.  Við verðum nú að fara að koma okkur út og taka þátt í því sem gerist utan veggja þessarar íbúðar :).  Við erum orðin frekar þreytt á þessum veikindum öllum saman.

Ég hef nu svosem ekkert annað að segja, engar fréttir aðrar í bili.

Knús á ykkur

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 10:48:55 / hyggeligt

Nýr meðlimur í stórfjölskylduna

Kolbrún Ösp og Jón Þór eignuðust yndislega fallega stúlku í gær. 12 merkur og 47 cm.  Fæðingin gekk hratt en vel og allir i góðu standi.  Meðgangan hafði ekki verið neitt sérstaklega spennandi og því er Kolbrún fegin að vera komin með prinsessuna sína í fangið.  Ég vil óska þeim innilega til hamingju með litla ljósið sitt :)

Andreu sló svona svakalega niður í gærkveldi og var með rúmlega 40 stiga hita í næstum alla nótt 8|.  Ég var alltaf með mælinn á lofti og náði loksins að sofna þegar hitinn var kominn niður í 39.7.  En það varaði ekki lengi því eftir ca 2 tíma var hún aftur komin yfir 40 og ældi.  Úff ég var frekar stressuð en náði svo að sofna undir morgun.  Þegar prinsessan vaknaði svo í morgun var hún hitalaus og er enn.  Mikið var ég glöð.  En nú pössum við okkur á því að fara ekkert út fyrr en í fyrsta lagi á morgun. 

Við ætlum að skreppa til Jótlands á sunnudaginn í afmælisveislu.  Brynjar Hauksson (bróðursonur Júlla) verður 3ja ára.  Þau búa í Óðinsvéum og það verður gaman að hitta þau.  Það er alltof langt síðan við hittumst, en búum þó svo nálægt.  

Jæja ég ætla að heilsa upp á Júlla sem var að koma heim.
Kærlig hilsen;  Berglind
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 11:33:41 / hyggeligt

Eitthvað ægilega menntað ;)

Jæja nú er víst kominn tími til að  láta í okkur heyra, ekkert um veður :).
Nei Bára mín það var ekki kveikt í tölvunni okkar hehhe, en gott skot engu að síður :lol:

Við eigum svo skemmtilegt dagatal með spakmælum fyrir hvern dag sem við samviskusamlega skoðum á hverjum degi.  Í dag 20. febrúar stóð : "Ekki draga hlutina, komdu þér að verki!" Wow hugsaði ég.  Akkúrat það sem ég þurfti.  Ég settist því við tölvuborðið og fór í það að taka til í bókhaldinu.  Setja gamla reikninga í möppu síðasta árs og búa til nýja fyrir þetta ár.  Vá enginn smá léttir.  Ég er búin að vera að bíða eftir að Júlli geri þetta hehhe.  Ég er gjörn á að kenna öðrum um, eða Júlla, ef að eitthvað er ekki gert eins og ég vil.  Ef að reikningar týnast er það út af því að Júlli setti þá einhvers staðar sem ég ekki fann þá hehehehhe.  Gat nú ekki annað en hlegið að þessari vitleysu í mér.  Nú er kominn tími til að taka bara ábyrgð á þessu sjálf, og það gerði ég áðan.  Nokkuð stolt af sjálfri mér.  Ég er líka svo heppin að Júlli hlær bara að þessari vitleysu í mér og tekur þetta ekki nærri sér.  Nú er bara að draga ekki að gera næsta verkefni og koma mér að verki :) 
Við mæðgurnar erum heima í dag.  Litla skottan er lasin, með hita og hor.  Við erum að teikna og skrifa og hafa það huggulegt, ennþá í náttfötunum.

7. mars koma Eydís og fjölskylda.  Við vorum svo heppin að geta reddað þeim húsi hérna á Kollegíinu.  Þá eru þau nálægt okkur og allir með sitt pláss.  Þau ætla að vera í viku og svo þegar þau eru farin koma páskarnir.  Við erum ekki búin að ræða hvort við gerum eitthvað en það gæti vel verið að við skellum okkur í smá ferðalag.  Aðeins að breyta um umhverfi :)
Jæja ætla að sinna lösnu prinsessunni minni og skella í eins og eina þvottavél.
Knús á alla
Berglind og co
 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 19:04:35 / hyggeligt

10 stiga hiti og logn

Þannig var veðrið hérna hjá okkur í dag.  Ætla nú ekkert að pirra Íslendinga sem staddir eru á Íslandi þannig að ég læt fréttir af veðri héðan duga í bili :)

Prinsinn var skírður og fékk það fallega nafn Óskar Davíð Áss.  Fallegt nafn fyrir fallegan dreng.  Hann var eins og engill í skírninni, heyrðist ekki í honum.  Stoltið skein úr augum foreldranna :)

Skólinn er byrjaður en ég ekki alveg komin í stuð ennþá.  Byrjaði nú bara á þriðjudaginn þannig að það er ekki öll von úti enn.  Ég náði prófunum og var ofsalega glöð með það.  Var pínu stressuð um tíma, er það reyndar alltaf.... það er erfitt að vera með fullkomnunarárattu hehhe 8|

Annars er allt í sama gamla farinu bara hérna í DK.  Júlli að smíða og Andrea sátt í leikskólanum.  Henni finnst mjög gaman og lætur okkur reglulega vita af því að hún sé betri en við í dönsku :haha:

Læt þetta duga í bili.  Blogga eitthvað ægilega menntað áður en langt um líður.

Ha´det godt :)


» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 64573
Dagsetning
9. febrúar 2010