|
|
01.04.2011 13:58:57 / hyggeligt
Gabbedí Gabb..
»
05.06.2009 19:02:22 / hyggeligt
Ég hefði aldrei trúað því að það væri hægt að fá flugriðu... en það er hægt!! Enda kannski ekki skrýtið eftir 12 tíma flug!!! Þetta var nú ekki það skemmilegasta sem ég gert, en endastaðurinn var nátturulega frábær!! Ég lenti um 17 LA tíma og var frekar þreytt og skrýtin fram eftir kvöldi. Við fórum á cheesecake factory og borðuðum æðislegan mat! Ég fór svo að sofa á miðnætti, búin að vera á fótum í yfir sólarhring!! Ég svaf svo bara til 04 enda ennþá að venjast tímanum, en ég sofnaði sem betur fer aftur. Nú er hádegi og ég bara í afslöppun yfir sjónbarpinu! Langþráð tilfinning, að sitja og þurfa ekki að gera neitt! Engin ritgerð!! Við skiluðum verkefninu 25. maí og ég verð að viðurkenna að því fylgdi ákveðinn tómleiki, margra mánaða vinnu lokið. AHHHH  Síðasta vika var stórmerkileg fyrir litlu stelpuna okkar. Hún hætti á leikskólanum og er byrjuð í SFO!! Hún stækkaði helling við þessa breytingu. Á föstudaginn var kveðjuhóf á leikskólanum þar sem foreldrar komu og borðuðu með börnunum og leikskólakennurunum. Krakkarnir fengu þá tösku sem þau taka með sér í skólann. Þetta var skemmtileg stund en jafnframt skrýtin og mamman var með "köttinn" í hálsinum þegar hún kvaddi alla. Svo var fyrsti dagurinn í SFO á þriðjudaginn. Andrea er rosalega sátt við að bera byrjuð og er ánægð með allt og alla og er ekki feiminn við að láta alla vita að hún sé byrjuð í skóla!! Ari byrjar svo í leikskólanum í ágúst, þangað til verðum við í fríi og höfum það notalegt! Jæja læt þetta duga í bili.... Kveðja frá sunny california.... þar sem rignir
»
11.05.2009 18:18:09 / hyggeligt
Ég sit núna alla daga á kafi í ritgerðinni minni sem á að skila þann 27. maí. Fór upp í skóla í morgun kl 09 og kom heim kl 19!!! Alveg steikt og úti á túni. Það tekur á að nota heilann í svona marga tíma í einu, allt á suðupunkti. En okkur miðar áfram, sem er gott!. Vonadi er leiðbeinandi okkar sammála því sem við höfum gert hingað til...... við ætlum að senda það sem við erum búnar með á föstudag og fáum svo bakveiti (feedback) á þá vinnu í næstu viku. Krossa fingur allir saman, þá höfum við aðeins viku til að koma öllu í toppstand!!!!
En mér varð annars hugsað til þess í dag að við erum búin að búa hérna í næstum 3 ár!!!
Ari Sævar er hress. Svaf í 12 tíma, án truflana, í nótt! (það var annað með mömmuna)!! Ég var frekar rugluð þegar Júlli vakti mig að verða 8 í morgun......bíddu er hann bara ennþá sofandi??? Og hann svaf bara áfram þó við hin værum komin á ról. Svo er prinsinn kominn með sína fyrstu tönn, já hún fannst þann 09.05.09 Hún er staðsett í neðri góm, vinstra megin (svo getið þið ímyndað ykkur hvernig hún lítur út) Hann borðar svo mikið barnið að það er næstum eins og að vera með 4 fullorðna í mat. Í kvöld fékk hann til dæmis hakk og spaghetti í forrétt og rúgbrauð með fiski og kartöflum í eftirrétt. Ég hafði varla undan að moka upp í barnið og ég stóð upp svöng . Vonandi sefur hann þá í 12 tíma í nótt elsku drengurinn Mamman er voða þreytt.
Andrea er orðin alveg tilbúin að byrja í SFO. Er ekkert rosalega glöð að fara á leikskólann á morgnana, en það þó í lagi meðan hún er þar..... allavega kvartar hún ekki undan því. Nú er skólahópurinn ekki lengur í gangi og sundið er búið líka. Hún þarf greinilega að hafa meira að gera en "bara" að leika. Það þurfa að vera einhver verkefni og eitthvað fyrir stafni. En það erun aðeins 12 dagar eftir á leikskólanum, svo er það bara rútan í skólann. Ég er frekar stressuð út af þessu öllu og kem til með að fara með henni fyrstu 2 dagana..... 3 daginn er ég nefnilega á leið til Ameríku, nánar til tekið LA,sunny California!!! Eins konar útskriftarferðalag Eins gott ég nái svo
Jæja er ekki best að ganga frá eftir matinn áður en ég verð of löt til að gera það!!! Kveðja B
»
21.02.2009 10:40:04 / hyggeligt
...er bara alveg að verða búinn!! Ari Sævar er að verða 5 mánaða eftir 2 daga og allt að gerast bara. Hann velti sér af maga yfir á bak 18. feb., og það vantar bara herslumuninn á að hann velti sér af baki yfir á maga. Það þarf bara smá að ýta við honum. En hann gerir þetta bara þegar hann er bleyjulaus, hann fær þessa líka svaka frelsistilfinningu að hann fer strax yfir á hægri hliðina. Ég var að athuga hvort hann myndi velta sér á vinstri hliðina með því að setja alveg ótrúlega spennandi dót þeim megin. Hann iðaði allur á gólfinu og velti sér svo yfir á hægri hlið, varð svo alveg steinhissa á því að dótið væri horfið!!! Hann fór því aftur yfir á bakið og sá dótið, varð svaka spenntur og velti sér af svaka krafti....en aftur á hægri hlið og skildi ekkert í þvi að dótið væri farið aftur!!! Þetta dundaði hann sér svo við í nokkrar mínútur 
Andrea Ósk var hjá talmeinafræðingi til að meta hvernig danskan hennar er áður en hún byrjar í skóla. Hún stóð sig eins og hetja og þarf engan stuðning þegar hún byrjar í skólanum. Hana vantar kannski smá orðaforða en það kemur og við þurfum engar áhyggjur að hafa. Hún stendur sig rosalega vel prinsessan okkar. Í gær var fastelavn (ösku-bolludagur) á leikskólanum og Andrea fór sem senjoríta. Hún var máluð og fékk meira að segja maskara og var líka svona lukkuleg með það. Ég held hún óski sér að það sé fastelavn á hverjum degi!! 
Við erum flutt yfir í KK242. Sváfum fyrstu nóttina í nótt. Það er nú hálftómlegt hjá okkur ennþá. KK60 er hins vegar full af drasli sem eftir á að flytja yfir. Ég er eiginlega ekki að nenna því, þetta er ekki það skemmtilegasta sem ég geri!! En þetta kemur hjá okkur hægt og bítandi. Það er rosalega gaman að horfa hérna út um gluggann í fína garðinn minn og hlusta á suð þvottavélarinnar. Lúxus bara hahaha En vegna flutningana þá erum við komin með nýtt símanúmer: 0045 44881555. og í þessu hringir síminn.
Biðjum að heilsa í bæinn.....
»
24.12.2008 10:56:51 / hyggeligt
Nú er Gunna á nýju skónum nú er að koma jól, Siggi er á síðum buxum, Solla á bláum kjól. Jólin eru rauð í Danmörku. Jólasveinarnir fengu gott veður til að dreifa pökkunum. Við ákvaðum öll að setja skóinn út í glugga í nótt til að athuga hvort að kertasníkir myndi nú kannski gefa okkur smá. Andreu fannst það nú heldur ólíklegt og hló bara að okkur. En viti menn, þegar prinsessan vaknaði í morgun voru gjafir í öllum skónum. Mikil gleði fyrir alla. Já og ekki nóg með það þá kom Kertasníkir, ásamt Kjetkróki, með pakka fyrir Andreu Ósk og Ara Sævar. Andreu brá svo þegar hún fór til dyra að litli kroppurinn titraði og hún hljóp upp í rúm til okkar skelfingu lostin. Hún gaf þeim sko kerti og skinku og fékk pakkana í staðinn. Þeir voru nú svolítið fyndnir og hún hló bara að þeim eftir smá stund. Nú sitja Andrea og Hafrún amma og spila spilið sem prinsessan fékk frá jólasveinunum. Nú er bara eftir að elda matinn, opna pakka og slappa svo af
Ég óska öllum þeim sem þetta lesa gleðilegra jóla. Megi Guð og gæfan fylgja ykkur þessi jólin. Kær jólakveðja frá Danmörku Berglind og fjölskylda
»
15.12.2008 18:37:42 / hyggeligt
2% líkur á hvítum jólum í Danmörku þetta árið. En er nokkuð að marka þessa veðurfréttamenn, við vonum að við fáum allavega smá föl á aðfangadag.Við ætlum að vera í Danmörku um jólin, sem fyrr. Það er voðalega notalegt að vera hérna, ekkert stress á síðustu stundu eins og oft heima. Eða ég er þannig, geri allt á síðustu stundu. Hérna hefur ekki orðið nein breyting á nema að síðasta stundin er allavega 10 dögum fyrir jól svo að allt komist þangað sem það á að fara fyrir aðfangadag. Þessi síðasta stund var í dag og því er búið að kaupa flestar jólagjafir, auðvitað þær eftir sem eru hér, og jólakortin komin í póst. Mikill léttir, þar sem ég kvartaði svo mikið undan jólastressi í síðustu færslu. Núna á bara eftir að kaupa jólatré, gjafir handa börnum og manni og henda í eins og eina til tvær sortir. Semsagt ljúft líf og huggulegheit. Á morgun ætlum við Þórunn Katla húsfreyja að panta jóla og áramótasteikina. Á jólum verður boðið upp á hamborgarhrygg og á áramótum verðuð borinn á borð kalkúnn. Við erum búin að velja fyllingu sem Þórunn ætlar að hrista fram úr annarri erminni. Hafrún tengdamamma kemur til okkar á þorlák og verður hjá okkur til 29. desember. Ég held að skötunni verði sleppt þessi jóllin en í staðinn ætlum við að gæða okkur á sushi..... það verður semsagt fiskur, bara í öðrum búningi.
Jólasveinarnir hafa heimsótt okkur hingað, ég held að þeir séu með afleysingajólasveina sem sjá um útlöndin á þessum tímum, enda mikið að gera. Andrea skrifaði stekkjastaur bréf og bað um að fá gervineglur í skóinn. Við vorum nú ekki alveg viss um að hann ætti svoleiðis á lager. En þessir jólasveinar eiga nú víst allt milli himins og jarðar og því fékk prinsessan bleikar gervineglur í skóinn, sem eru nú á fingrum hennar Þetta byrjar nú aðeins of snemma fyrir smekk móðurinnar og var barninu því bannað að mála sig fyrir jólaballið sem við fórum á í gær, ég sagði að hún mætti mála sig þegar hún væri orðin 16!! Henni fannst það nú heldur ósanngjarnt en sættist á að fá að setja bara á sig gloss. Hún er sko bara 5 ára. Hvernig verður þetta eftir nokkur ár??? Ég svitna bara við tilhugsunina.
Ég setti myndir inn á síðu barnanna í gær. Endilega kíkið við.
Hugleiðingu dagsins er þá lokið. Verið heil og sæl.
»
04.12.2008 22:22:15 / hyggeligt
Úff ég er ekki mikið fyrir jólastúss. Verð bara stressuð.... hvað á að gefa í jólagjöf, kaupa jólagjafir, pakka inn (það er reyndar stemning), taka myndir í jólakort, skrifa jólakort, senda jólakort og svo framvegis..... Við erum alveg í þessu núna, ætlum að skella okkur í verslunarleiðangur á morgun, vonandi náum við að kaupa það sem eftir er.... sem eru þó nokkrar. Svo er bara að senda þær til Íslands, sem er ekki gefins En annars finnst mér jólin voða notaleg, þegar búið að redda öllu saman og hægt er að slappa af og baka sörur  Annars erum við í góðum gír. Ari Sævar er farinn að sofa mun betur. Vaknar bara svona 2-3x á nóttu sem er alveg geggjað. Ég get allavega ekki kvartað. Andrea Ósk er hress bara. Henni finnst hún vera aðeins of lengi á leikskólanum og ég sótti hana því fyrr í dag. En þá var hún ekki alveg tilbúin að koma heim. Fer milliveginn á morgun, sæki hana ekki eins snemma og sé hvernig það gengur. Annars lét hún okkur vita að þegar hún yrði stór myndi hún eignast mað. Ég var smá stund að fatta þetta, en hún meinti semsagt mann  En ætli ég verði ekki að halda áfram að gera jólagjafa-og jólakortalista. Adíós amigos
»
25.11.2008 11:30:48 / hyggeligt
»
03.11.2008 10:59:35 / hyggeligt
Spenningurinn alveg að fara með okkur hreinlega. Andrea telur klukkutímana og við foreldrarnir alveg að fara yfir um af stressi.....eða er það kannski bara mamman, pabbinn er víst hinn rólegasti. Ari er pollrólegur, sefur bara og er yndislegur. Hann er steinsofandi núna og er búin að vera það síðan rúmlega 6 í morgun. Hann rumskaði aðeins áðan til að drekka og fá nýja bleyju en sofnaði svo aftur. Hann mætti nú alveg taka svona lúra á næturna, en nei, honum finnst betra að vera hálfvakandi allar nætur. Drekka smá og sofna, vakna svo eftir 10 min og væla pínu, drekka svo smá og svo framvegis. Verð að viðurkenna að ég er orðin frekar pirruð undir morgun þegar barnið loksisns sofnar. Ég ætlaði nú að reyna að vekja hann áðan en það gekk ekki. Hann er alveg rotaður blessaður karlinn, hrýtur í vöggunni sinni. Andrea var svo þreytt í morgun að hún nennti ekki í leikskólann. Við ákvaðum þá bara að leyfa henni að vera í fríi í dag og stússast með okkur. En klukkan hálf ellefu var hún frekar óhress með að geta ekki leikið við neinn og bað því um að fara á leikskólann Litla prinsessan orðin eirðarlaus og spennt. Veit ekki hvort hún á að koma eða fara. En það er víst í nógu að snúast, brjóta saman þvottinn, taka til, vaska upp, pakka niður og allt það. Verð að byrja á þessu áður en ég verð of stressuð. Við verðum með gamla símanúmerið mitt...... vonandi munið þið það Knús á línuna....
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
Heimsóknir
Í dag: 18 Alls: 77795
Dagsetning
8. febrúar 2012
|